Að ráða yfir lífi og dauða

Þetta er svolítið sérstök aðferð til að vekja athygli á skorti á líffæragjöfum ef það er hið raunverulega markmið. Ef þetta er ekki á gráu svæði þá er það fátt og eflaust finnst einhverjum þetta hreinlega vera komið yfir á svarta svæðið. Hér í Danmörku hafa nokkrar sjónvarpsstöðvar nú þegar hafnað því að taka þátt með sama sniði á dagskrá en amk. ein hefur lýst áhuga á því að skoða málið frekar. Eftir því sem að mér skilst þá eru þarna leiddir saman líffæragjafi og þrír væntanlegir líffæraþegar sem eiga framtíð sína undir því að fá umrætt líffæri. Líffæragjafinn með hjálp áhorfenda ákveður síðan hver fær líffærið og hinir þáttakendurnir halda áfram sinni bið á biðlistanum eftir nýju líffæri. Sú bið getur eflaust hæglega endað á versta veg og er meiningin eflaust sú að fleiri eigi að bjóða sig fram til að gefa líffæri.

Hvort að þetta sé síðan besta aðferðin til að auka tíðni líffæragjafa þó að á gráu svæði sé er síðan annar handleggur. 


mbl.is Hollenskir læknar fordæma raunveruleikaþátt um nýrnagjafa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er loksins komið að því að taka til hendinni?

Það er auðvitað löngu komið að því að taka til hendinni í heilbrigðiskerfinu vestan hafs. Hef reyndar meiri trú að að Obama komi því í gegn heldur en Hillary enda eru Clinton hjónin víst í þessu af valdagræðgi einni saman en ekki vegna áhuga á að bæta kjör og aðstæður samborgara sinna. 
mbl.is Obama með heilbrigðisáætlun sem færir öllum sjúkratryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endist stjórnin sumarið?

Það haustaði snemma hjá þessari stjórn eins og veðurfarið norðanlands ber með sér. Það er hinsvegar fremur óvenjulegt að flokkarnir séu farnir að deila í fjölmiðlum eftir aðeins fáeina daga í stjórn. Þetta er eflaust það sem Sjálfstæðismenn eiga eftir að sakna við að vera í stjórn með Framsóknarmönnum þar sem svona mál voru afgreidd á fundum en ekki í fjölmiðlum. Það er því útlit fyrir að fjölmiðlar og bloggarar fái nóg um að skrifa í tíð stjórnarinnar ef svo fram heldur sem horfir.
mbl.is Össur segir ríkisstjórnina ekki munu ráðast í Norðlingaölduveitu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lokaspretturinn hafinn

Þá er komið á lokasprettinn í verkefnavinnunni. Rúmlega fjögurra mánaða vinna að baki og námsferlinum hér í Óðinsvéum að ljúka. Tókum okkur til við að prenta hluta af viðaukum og fylgigögnum í dag og gera aðrar ráðstafanir eins og kaup á möppum og slíku. Síðan er það á mánudaginn sem allt heila klabbið verður prentað út og sett í möppur. Taldist til áðan að þetta færi nærri því að vera um 400 síður þegar allt er talið. Verður ágætt að losna við að gera fleiri svona verkefni í bili þrátt fyrir að eflaust muni eitthvað í þessa áttina koma upp í vinnunni.

Nú styttist síðan óðum í að maður sleppi út á vinnumarkaðinn á nýjan leik og geti farið að láta ljós sitt skína. Vonandi að námið eigi eftir að skila sér á nýja/gamla vinnustaðnum og það verður gott að koma aftur og hitta hópinn á ný. Ekki verður síðra að komast aftur í nábýli við stórfjölskylduna enda oft búið að vera erfitt að vera langdvölum í burtu og missa af ótöldum fermingum, brúðkaupum og afmælum svo ekki sé minnst á brandaraflóð eða knattspyrnukeppnir. Endanleg heimkoma hefur verið sett þann 8. júlí og nýju íbúðina flytjum við síðan í þann 15.

Eitthvað á maður nú eftir að sakna Danmerkur og eflaust því meira eftir því sem frá líður. Hér hefur verið ánægjulegt að búa og gott að læra. Hinsvegar hefur maður heyrt að glansinn fari fljótt af hér þegar fólk fer að vinna og kynnist skattkerfinu af eigin raun. Hér hefur maður kynnst fjöldanum öllum af fólki og eignast marga nýja vini sem etv. hefði ekki orðið raunin ef maður hefði ekki slitið heimdraganum.

Nú er bara að klára dæmið og einbeita sér síðan af flutningunum heim. Ef það væri nú hægt í öllum þessum hita.Cool 


Stjórnarsáttmáli Framsóknar ó fyrirgefið, Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks

Þessi stjórnarsáttmáli er nú fremur þunnt plagg sem hægt er að toga og teygja í allar áttir. Það eina sem er ljóst að það verður haldið áfram á sama hátt og áður og það eina sem breytist er að nú er það Samfylkingin sem er meðreiðarsveinn Sjálfstæðismanna en ekki Framsókn. Eflaust geta Samfylkingarmenn lesið eitthvað af eigin stefnumálum út úr þessu með góðum vilja en það verður erfitt að koma málum fram á grundvelli þessa sáttmála. Hvar er til að mynda stóriðjuhléið margumtalaða? Björgvin G. lofaði landsmönnum að þeir yrðu áþreifanlega varir við að fá Samfylkinguna í stjórn en mín spá er sú að enginn muni taka eftir neinu og Samfylkingin verði komin niður í léttvínsfylgi innan tveggja ára. 

Hvað gera hluthafarnir?

Nú er spurningin hversu margir hluthafar taka tilboðinu frá Alcoa og síðan hvað framhaldið yrði ef meirihluti þeirra myndi taka því. Þá kæmi að samkeppnisyfirvöldum að meta samrunann og hvort að hann yrði leyfður. Það er því ekki allt búið eins og margir halda þrátt fyrir að stjórnin mæli gegn samruna.
mbl.is Alcan hafnaði yfirtökutilboði Alcoa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona er dómskerfi íhaldsins

Traust almennings á íslenska dómskerfinu var nú ekki mikið fyrir. Eftir að hafa náð fram sakfellingu í broti af þeim ákærum sem gefnar voru út í Baugsmálinu bætist handvömm eins og þessi ofaná. Ætli það sé einhver von til þess að einhverjir aðrir en sjálfstæðismenn fái þetta ráðuneyti og taki til í þessu rotna bæli dugleysisins.
mbl.is Gleymdist að gera kröfu um refsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er knattspyrnan deyjandi listform?

Sem áhangandi Manchester United horfði maður að sjálfsögðu á úrslitaleikinn og að þessu sinni með harðann púllara við hliðina á sér. Ekki var nú margt minnisstætt eftir fyrri hálfleikinn enda litlir sóknartilburðir hjá Chelsea og erfiðleikar hjá United að koma sér í góð færi. Úr þessu var síðan bætt í upphafi seinni hálfleiks þegar United gerði harða hríð að marki Chelsea en án árangurs. Á áttugustu mínútu sagði félagi minn síðan við mig: ,,Ef ég væri heima hjá mér væri ég búinn að skipta um rás".

Eftir að Chelsea hafði síðan unnið leikinn fór ég að velta þessum orðum fyrir mér. Hvað sagði Valdano um daginn. Að það væri skemmtilegra að horfa á skít á priki en að horfa á Chelsea og Liverpool spila knattspyrnu. Er vélrænn ofurskipulagður fótbolti að eyðileggja þá list sem vel spiluð knattspyrna er?

Leikskipulag Chelsea byggir á eftirfarandi

1. Ekki fá á sig mark 

2. 10 menn fyrir aftan knöttinn, alltaf

3. Þéttur miðjupakki skipaður vinnuhestum sem eiga að berja andstæðingana til hlýðni í miskunnarlausum návígjum.

4. Aldrei meira en 5 menn fram yfir miðju í einu.

5. Hægja á tempói leiksins niður í gönguhraða 

6. Ef færi gefst má reyna að skora en það er ekki nauðsynlegt

7. Ef það tekst að skora skal tefja með öllum ráðum íþróttamannslegum eður ei

 

Dæmi um það síðastnefnda var augljóst í lok leiksins í dag og er Chelsea ekki til mikils framdráttar. Flest lið tefja eitthvað undir lok leikja en að fá á sig 4 gul spjöld við það er ekki venjulegt.

Sem betur fer á ég ekki við það vandamál að stríða að mitt uppáhaldslið beiti ofantöldum aðferðum. Margir segja að áhangendur Liverpool og Chelsea haldist ánægðir í augnablikinu á meðan vel gengur en muni síðan snúa við þeim bakinu ef verr fer að ganga. Vonandi er að það verði fyrr en seinna og fengnir verði nýir þjálfarar sem spila skemmtilegan fótbolta og eflaust árangursríkan. Þá fer aftur að verða gaman að horfa á fótbolta á Englandi á ný. 

 


mbl.is Chelsea enskur bikarmeistari eftir 1:0 sigur á Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Et tu Brute

Það er ótrúlegt hvað sjálfstæðismenn eru snöggir að fara í varnarstöðu þegar Jón Sigurðsson sakar þá um óheilindi. Það er amk. erfitt að bera í bætifláka fyrir svona framkomu. Hefði átt að vera óþarfi að ljúka 12 ára samstarfi á þennan hátt. Það er samt alveg ljóst að hvort sem það var elska sjálfstæðismanna á kjötkötlunum eða rótgróinn ótti þeirra við vinstri stjórn þá eru það alltaf sömu skítabrögðin sem gripið er til.

Eftirfarandi er mín túlkun á atburðarrásinni frá sunndegi til fimmtudags

Aðfaranótt sunnudags: Framsóknarmenn lýsa því yfir að ólíklegt sé að þeir komi að stjórnarsamstarfi

Sunnudagur: Geir og sjálfstæðismenn láta í það skína að þeir séu tilkippilegir í að halda samstarfinu áfram

Sunnudagskvöld: VG gerir möguleika á vinstristjórn nánast að engu í beinni og með því leikinn auðveldari fyrir Geir.

Mánudagur: Viðræður milli Geirs og Jóns um áframhald ríkisstjórnar en á meðan eru sjálfstæðismenn í viðræðum við samfylkinguna

Þriðjudagur: Lítið virðist gerast á milli Framsóknar og Sjálfstæðisflokks en allt á fullu í bakherbergjunum hjá S&D

Miðvikudagur: Farnar að renna tvær grímur á Framsóknarmenn enda farið að leka út um viðræður S&D.

Fimmtudagur: Viðræðum slitið milli Framsóknar og Sjálfstæðisflokks og 90 mínútum síðar hefjast viðræður formanna S&D.

Fimmtudagskvöld: VG réttir fram sáttahönd til Framsóknarmanna og hvetur til hefðbundinnar vinstri stjórnar en er það of seint?

 

Eins og flestir vita þá er það klassísk taktík að reyna að deila og drottna til að ná sínu fram. Spurning hversu rólegur Geir er núna þegar Solla er annan kost til vara ef hann býður ekki nógu vel. Þetta gætu orðið vikur hinna löngu hnífa.


Steingrímur hleypur með sáttahönd til Framsóknar

Það var kyndugt að sjá Steingrím J. í Kastljósi kvöldsins. Eftir að hafa haldið áfram að kosningabaráttu lokinni að berja á Framsóknarmönnum og að hafa fundið vinstri stjórn með þeim innanborðs flest til foráttu nema ef hægt væri að nota Framsóknarmenn sem hækju þá snýr hann nú við blaðinu og réttir fram ólífugreinina. Hvað ætli valdi þessu? Jú Steingrímur sá sitt tækifæri um að komast í stjórn með Sjálfstæðismönnum fjúka út um gluggann og til að bjarga andlitinu þá hleypur hann til með ólífugreinina til að reyna að láta líta út fyrir að það sé Ingibjörg sem eyðileggur vinstri stjórnina en ekki hann.

Það ætti svosem ekki að koma Steingrími á óvart að svona færi því Sjálfstæðismenn hafa alltaf gætt þess að halda frumkvæði í stjórnarmyndun til að tryggja sér að verða ekki skildir eftir á hliðarlínunni. Ef Sjálfstæðisflokkurinn er ekki að ræða við þig á bak við tjöldin eftir kosningar þá er hann að þykjast ræða við þig opinberlega eða hefur engan áhuga á að fara með þér í stjórn. Það er ljóst að vinstri flokkarnir eiga margt ólært í stjórnmálaklækjum og það er spurning hvort að Steingrímur Hermannsson þurfi að taka vinstri menn á námskeið í þessu.

En ekki er sopið kálið fyrr en í ausuna er komið og eftir að  Steingrímur er mættur með ólífugreinina til Framsóknar er nú möguleiki fyrir ISG að næla sér í forsætisráðherrastólinn og því gæti hún nú dobbelblöffað sjálfstæðismenn og skotið þeim ref fyrir rass.

Sjáum hvað setur 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband