19.3.2009 | 22:16
Jóhanna dregur 20 með sér
Samfylking og VG með samtals 55,8% - 38 þingmenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.3.2009 | 18:22
Ætli blysförin hafi gert útslagið??
Baugur productions kynnir í samstarfi við Icelandic Glacial.
Hryllingsmyndin sem allir hafa beðið eftir
The Economic Terminator II
-The reluctant leader-
Leikarar: Jóhanna Sigurðardóttir, Össur Skarphéðinsson, Árni Páll Árnason og Björgvin G. Sigurðsson.
Leikstjóri: Skúli Helgason
Framleiðandi: Jón Ásgeir Jóhannesson
Meðframleiðandi: Jón Ólafsson
Hér fylgir með leikdómur Davíðs Oddsonar kvikmyndagagnrýnanda AMX.
"Söguþráðurinn er einfaldur og plottið gott. Eftir að öll þjóðin hefur legið á bæn svo að vikum skiptir snýr Jóhanna aftur enn á ný til þess að ljúka sínu verki við að koma atvinnulífinu og heimilunum til bjargar með því að gera ekki neitt. Jóhanna og meðleikendur vinna stórkostlegan leiksigur enda handritið alger snilld."
Fimm stjörnu mynd enginn vafi.
Jóhanna svarar kalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.3.2009 | 22:47
Glæsilegur árangur hjá Huld og Sigmundur sterkur
Ég er afar ánægður með að sjá Huld ná þriðja sætinu. Þar fer skörungur mikill og hún á eftir að gera það gott og tryggja flokknum vonandi góða kosningu í NA. Ekki var síður ánægjulegt að sjá Sigmund Davíð reykja og steikja Árna Pál í silfrinu í dag. Árni leit út eins og óöruggur smástrákur sem vissi ekki hvort hann var að koma eða fara. Ég ætla að vona að það verði eins margar pallborðsumræður fyrir þessar kosningar eins og mögulegt er því að enginn af hinum foringjunum hefur roð í hann. Einnig var ánægjulegt að sjá að Egill er hættur með Samfylkingar hallelúja viðkvæðið sitt og lét Árna heyra það þegar hann gólaði enn einu sinni að ESB væri bjarghringurinn.
Almenningur mun sjá að Sigmundur og Framsóknarflokkurinn eru með hugmyndir og lausnir og Sigmundur getur kynnt þær á þann hátt að fólk skilur. Á meðan kemur ekkert frá hinum flokkunum annað en tafs fyrir utan það að boðið verður upp á sömu súpuna og síðast því endurnýjunin er nánast enginn og gömlu flokksgæðingarnir munu enn á ný raða sér á jötuna. Þegar fólk fer að átta sig á því að það er ekki nóg að kjósa Samfylkinguna af því að Jóhanna er góð kona þá er voðinn vís fyrir Samfylkinguna og VG og D þurfa að sýna fram á einhverjar hugmyndir ef að þau eiga að ná framgangi.
Allt skynsamt fólk hefur í dag aðeins eitt val XB því að hinir flokkarnir eru eins gjaldþrota og bankarnir.
Birkir Jón sigurvegari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.3.2009 kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.3.2009 | 21:45
Hraunið bíður JÁJ
Skipulögð rógsherferð gegn fyrirtækjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.3.2009 | 21:16
Framboð meira en eftirspurn
Ingibjörg Sólrún hættir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.3.2009 | 21:17
Ekkert nýtt við þetta
Ný lausn erlendra lána | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.3.2009 | 10:34
Leikfléttan spilast áfram
Þarf varla að kommenta á þessa frétt með öðru en að benda á síðustu færslu. Forhannaða atburðarrásin er farin af stað og vei þeim sem í vegi stendur. Höskuldur Þór hefur fengið að kenna á því.
Dagur í varaformanninn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.2.2009 | 20:57
Ingibjörg fer fram í skjóli Jóhönnu
Ingibjörg og Skúli Helga eru búin að "hanna" eftirfarandi atburðarrás.
1. Jóhanna leiðir Samfylkinguna í kosningunum og mynduð verður 2-3 flokka vinstri stjórn undir forystu hennar. Dagur B. Eggertsson verður gerður að ráðherra.
2. Eftir rúmt ár dregur Jóhanna sig í hlé og Ingibjörg kemst þangað sem að hana hefur alltaf langað í forsætisráherrastólinn.
3. Ingibjörg segir af sér formennsku Samfylkingarinnar ca. árið 2012 og Dagur B. Eggertsson sest í hennar sæti.
Það verður að segjast eins og er að öll maskínan er mjög samhæfð í þessum aðgerðum þeas. Fréttablaðið, Stöð 2 og bloggarar Samfylkingarinnar. Miðstýringin er farin að minna á alræðisflokka 20 aldarinnar því svo smurt eiga hlutirnir að ganga á þessum bænum.
Síðan er bara spurningin hversu leiðitamir sauðirnir í hjörðinni verða.
Ingibjörg býður sig fram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2009 | 15:28
Flokksmiðillinn farinn að undirbúa jarðveginn fyrir Jóhönnu
Leiðtogaefni á færibandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.2.2009 | 19:52
20% niðurfelling er raunhæf
Hugmyndir Framsóknar um 20% niðurfellingu íbúðalána eru ekki eins fjarstæðukenndar og margir halda. Hver málsmetandi maðurinn af öðrum viðurkennir þessa staðreynd og óskandi væri að ríkisstjórnin geri það líka. Vilhjálmur Þorsteinsson skýrir þetta vel á sínu bloggi sem ég hlekkja á hér að neðan.
http://www.vthorsteinsson.blog.is/blog/vthorsteinsson/entry/813094/
Hugmyndin snýst um að ÍLS taki lánin úr gömlu bönkunum yfir og borgi fyrir þau 50-60% af nafnverði. ÍLS rukki síðan skuldarana um 80% af nafnverði. Mismuninn sem að ÍLS tekur til sín notar hann til að færa eigin lán niður í 80% af nafnverði. Ergo ÍLS kemur út nánast á sléttu.
Nokkrir óvissuþættir eru í þessu:
Afskriftahlutfall kröfuhafa gömlu bankanna og hversu margir skuldarar munu ráða við 80% af kröfunni.