Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Sex úrslitaleikir

Það stefnir í að það verði barátta uppá líf og dauða í Dauðariðlinum sem svo hefur verið nefndur. Þetta gerir leikina síðan bara enn meira spennandi fyrir þá sem ekki styðja eitthvað ákveðið lið. Eins gott að fara að skipuleggja sumarfríið strax.
mbl.is Holland, Frakkland og Ítalía saman í riðli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær rís hinn þögli meirihluti upp gegn gjömmurunum?

Það er í þessu máli sem öðrum líkum að hinir frelsuðu umhverfissinnar fara hamförum og fá til þess fullan stuðning fjölmiðla. Það er sama hverskonar rakalaus vitleysa er borin á borð því gagnrýni fjölmiðlanna er enginn eins og Ólafur Teitur lýsti vel í Silfrinu í gær. Meirihluti þjóðarinnar sem hefur ekki skoðun á málinu er síðan kaffærður í áróðri eins og sannaðist best í Hafnarfjarðarkoningunum þegar eftir á kom í ljós að ekkert í málflutningi Sólarmanna stóðst rök. Það stöðvaði þó ekki fjölmiðlana í að lepja alla vitleysuna upp og birta með æsifyrirsögnum.

Það fer líka mengunarkóngunum í Hveragerði einstaklega vel að kasta steinum úr glerhúsinu sínu. Fyrir ekki margt löngu rann mengaðasta á framhjá bænum og ekki reikna Hvergerðingar með því að hveralyktin í bænum breytist við að bæta Bitruvirkjun við. Hvergerðingar vildu ekki verða hluti Ölfus og því verða þeir bara að sætta sig við að hafa ekki áhrif á þetta mál. Sá sem býr sér ból verður jú að sofa í því.


mbl.is Óábyrgt að halda áfram með Bitruvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálkan leynist víða

Það er ekki bara á heiðum og fjallvegum sem er hálka. Hér í Hafnarfirðinum er fljúgandi hálka þessa stundina og ók ég fram á dreng sem hafði velt bíl sínum á Reykjanesbrautinni fyrir neðan Áslandið. Á meðan bíllinn minn stóð þarna við með viðvörunarljósin á kom í ljós að margir ökumenn höfðu ekki áttað sig á aðstæðunum og skautuðu um götuna en sem betur fer þó án frekari slysa. Drengurinn slapp ómeiddur þrátt fyrir að hafa endastungið bílnum enda hafði hann vit á því að vera í belti. Vonandi er að menn fari varlegar hér eftir enda kominn sá tími þegar hálkan getur myndast snögglega á köldum vetrarkvöldum.
mbl.is Víða hálka eða hálkublettir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýir menn nýir siðir

KSÍ var ekkert að tvínóna við hlutina og réði Ólaf bara með hvelli. Hann er þó amk. maður með reynslu af þjálfun og ekki hefur maður heyrt af agaleysi í herbúðum FH. Það er ágætt að eiga kanski von á skipulögðu og baráttuglöðu liði til tilbreytingar.

Er þetta ekki lýsandi fyrir þjálfaraferil Eyjólfs

Var að lesa umfjöllun vísis.is og fótbolta.net um hræringarnar innan landsliðsins að undanförnu. Þar kemur í ljós að Eyjólfur hafði loksins áttað sig á að Eiður er ekki fæddur fyrirliði og ætlaði að skipta honum út. Það átti hinsvegar aðeins að gerast ef að Eiður myndi segja af sér sem að hann vildi ekki. Eyjólfur átti að sjálfsögðu að taka af skarið og skipta um fyrirliða hvað sem Eiður segði en það er alveg ljóst að Eyjólfur hefur ekki verið að fleygja knattspyrnuskóm í leikmenn eða reynt á nokkurn hátt að halda aga í liðinu. Fréttir af því að að leikmenn liðsins hafi virt útivistarreglur að vettugi án þess að þurfa að hafa áhyggjur af afleiðingunum undirstrika það að þörf er á nýjum þjálfara og er það ánægjulegt að KSÍ hefur loksins áttað sig á stöðunni. Nú er bara að vona að Geir fái einhvern með viti til að hjálpa sér að finna nýjan þjálfara.

Villi og Björn ætla ekki að rannsaka sjálfa sig

Öll þessi umræða um þennan blessaða stýrihóp er held ég að enda úti á túni. Næstu fréttir verða eflaust að þetta fari fram eins og yfirheyrslur hjá Bandarískri þingnefnd í beinni á báðum stöðvum. Ætla amk að vona að ef að út í slíkt fer að menn missi sig ekki út í McCarthyisma og stundi pólitískar nornaveiðar. Efast ekki um að Svandís Svavarsdóttir gæti tekið sig vel út í slíku en held að það verði engum til gagns. Það sem skiptir máli er að vel verði að verki staðið og samrunaferlið skoðað með hagsmuni Orkuveitunnar og borgarbúa að leiðarljósi.

Mitt mat er það að útrásarfyrirtæki sem ætla að berjast á opnum samkeppnismarkaði ættu ekki að eiga nema í mesta lagi 10% í almenningsveitum sem ætti að vera nægilegt til að tryggja þeim aðgang að þeirri þekkingu sem nauðsynleg er. Það að leggja stærri hluta í almenningsveitunum undir í útrásarævintýrum er óráðlegt. Þegar fyrirtækin eru komin á markað er engin leið að stjórna því í hvaða höndum þau lenda og því er betra að byrgja brunninn áður en barnið dettur í hann.


mbl.is Björn Ingi ekki í stýrihópnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bless Eyjólfur

Þann 6 júní skrifaði ég færslu þar sem ég hvatti Eyjólf til að taka pokann sinn í kjölfar skelfilegrar frammistöðu á móti Svíum. Eftir frammmistöðu gærdagsins gæti ég nánast endurskrifað þá færslu frá upphafi til enda þar sem hún á jafn mikið erindi í dag og þá. 

Eyjólfur er ekki rétti maðurinn til að stýra landsliðinu. Við verðum að átta okkur á því að þar sem aðeins er um takmarkaða auðlind að ræða þeas. leikmenn þá getum við ekki leyft okkur að setja hvaða þjálfara sem er og ætlast til þess að ná árangri. Ef árangur á að nást þarf þjálfarinn að vera í toppklassa og í okkar tilfelli að vera harðstjóri því að vinnusemi og liðsheild er það eina sem getur skilað okkur áfram.

Að hafa Eyjólf sem þjálfara og Eið sem fyrirliða er því algerlega ófært. Hvorugur er starfi sínu vaxinn og breytinga er þörf.

Guðjón sem landsliðsþjálfara 


Hvorum myndir þú trúa?

Var að horfa á viðtal Helga Seljan við þá Vilhjálm og Bjarna Ármannsson. Vilhjálmur virðist ætla að taka þann pólinn í hæðina að það sé betra að leika Villa viðutan sem ekkert man sem hann les eða er sagt fremur en að viðurkenna að hann hafi farið með rangt mál. Ef þetta er raunin þá held ég að Reykvíkingar séu betur komnir án Villa því hvar myndi þessi vegferð enda með hann við stýrið? 


Er Bjarni Vestmann búin að koma öllu í bál og brand?

Ætli þetta hafi eitthvað með heimsókn Bjarna til Tamíl tígranna að gera? Etv. treysta Sri Lanka menn ekki vestrænum þjóðum lengur til að miðla málum eftir þetta glappaskot. Það mál allt sýnir hversu skammt Íslendingar eru á veg komnir í því sem kallast "diplomacy" og vekur einnig upp ákveðnar spurningar varðandi framboð Íslands til öryggisráðsins. Er stuðningur allra þessara ríkja í hendi eins og haldið hefur verið fram eða hefur fv. upplýsingafulltrúi Kofi Annans rétt fyrir sér þegar hann segir að Íslendingar séu barnalegir ef þeir haldi að já sé alltaf já?  
mbl.is Yfirvöld á Sri Lanka hafna eftirliti Sameinuðu þjóðanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þunnur þrettándi

Er mbl að reyna að þagga niður skömmina með svona fréttaflutningi? Eins lítið er gert úr málinu og hægt er. Trúnaðarbrestur og vík milli vina eru yfirlýsingarnar og síðan ákveða sjálfstæðismenn einhliða að draga orkuveituna út úr REI. Hvað er eiginlega í gangi? Sjálfstæðismenn að draga fram gamla klisju um opinberann rekstur vs. einkarekstur til að breiða yfir skandalinn. Hvar er Guðlaugur Þór, aðalhvatamaður REI? Þetta er hið undarlegasta mál allt saman held ég að allir geta verið sammála um.
mbl.is Sátt meðal sjálfstæðismanna þrátt fyrir trúnaðarbrest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband