20.3.2007 | 22:02
Framtíðin grá eða græn???
Það var einstaklega ánægjulegt hvað margir Íslendingar og þá sérstaklega VG fólk hefur gengið til liðs við Framsóknarflokkinn síðustu daga og valið græna framtíð fyrir Ísland. Þetta fólk hefur greinilega áttað sig á að framtíð Íslands er best borgið með Framsóknarmenn við stjórnvölinn og nú þegar hefur verið gerð tillaga um að Steingrímur J fari fram í heiðurssæti Framsóknar í NA kjördæmi enda alþekktur atkvæðaveiðimaður sérstaklega meðal kvenna. Þeir sem enn vaða í villu og svima og eru á gráu svæði innan annara flokka eru vinsamlegast beðnir um að ganga inní græna framtíðarlandið og þar með í Framsóknarflokkinn sem félagar fyrir lífstíð. Allt er vænt sem vel er grænt, Framsókn og Framtíðarlandið til sigurs.
PS: Þegar Baugsmáli loksins lýkur mun koma höfundarréttarmál fyrir héraðsdóm Reykjavíkur þar sem krafa hefur verið gerð frá Framsókn að VG felli niður bókstafinn orðið grænt úr nafni sínu og þar með bókstafinn G. Fram hefur komið að Jónas frá Hriflu sótti um einkaleyfi á notkun orðsins grænt og litnum grænum í íslenskri pólitík og gildir ofannefnt einkaleyfi til 2216.
20.3.2007 | 20:15
Hverskonar fólk notar börn í þessum tilgangi?
![]() |
Uppreisnarmenn í Írak sagðir hafa beitt börnum í sjálfsvígsárás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.3.2007 | 17:01
Álið er málið
![]() |
Segir Hagfræðistofnun vanmeta tekjur Hafnarfjarðar af álveri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.3.2007 | 18:37
Hvenær kemur svo reikningurinn inn um lúguna hjá okkur?
Er loksins farið að hilla undir lokin á þessari endaleysu? Miðað við frammistöðu ákæruvaldsins í samráðsmáli olíufélaganna, þar sem fólki fannst það borðleggjandi að hægt væri að dæma forstjórana fyrir samsæri gegn þjóðinni (heita það ekki annars landráð?), þá er ekki að búast við öðru en sýknudómi í málinu.
Síðan kemur reikningurinn fyrir lögfræðingasukkið og hann endar þá á borði almennings, nema hvað. Held það væri réttast að vísa rukkuninni til föðurhúsa og fara með hana í Seðlabankann. Dabbi getur sjálfur borgað brúsan af þessu einkamáli sínu gagnvart Baugi, ekki hef ég neina löngun til að gera það.
![]() |
Vitnaleiðslum lokið í Baugsmálinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.3.2007 | 18:03
Væn búbót það
Þá kom loksins eitthvað efni frá óháðum aðilum sem hægt er að glugga í fremur en að deila um hvort að sé eitthvað að marka eður ei. Þessi skýrsla sýnir svart á hvítu hvað stækkunin þýðir fyrir Hafnarfjörð, ekki bara ein og sér heldur borin saman við aðra kosti í stöðunni. Inn í þessum tölum eru ekki hin frægu margfeldisáhrif enda má deila um hvort þau væru þau sömu fyrir annan iðnað sem kæmi í stað stækkunar eða ekki. Mín persónulega skoðun er sú að það myndi taka langann tíma að byggja upp iðnað á svæðinu sem myndi skila sama arði í bæjarsjóð Hafnarfjarðar og sömu margfeldisáhrifum inn í bæjarfélagið. Þá skoðun eru eflaust ekki allir sammála um en það er bara eins og það er.
Þegar öllu er á botninn hvolft er þetta einfalt reikningsdæmi þar sem tapið reiknast allt að 600 miljónir en ágóðinn allt að 5 miljarðar. Þar sem stækkunin hefur staðist allar opinberar kröfur án kæru er erfitt að grípa til mengunarrakanna og það gerir það að verkum að einu rökin sem hægt er að grípa til gegn stækkun eru tilfinningarökin. Ég er ekki að gera lítið úr vægi þeirra raka enda ganga þau í báðar áttir. Starfsmenn álversins eru uggandi um framtíð síns vinnustaðar ekki síður en sumir Hafnfirðingar eru ekki sáttir við að álverið stækki af ýmsum ástæðum. Þessi skýrsla ætti hinsvegar að gera hinum þögla meirihluta auðveldara að taka sína ákvörðun þann 31. mars.
![]() |
Tekjuauki Hafnfirðinga af stækkun álvers 3,4-4,7 milljarðar króna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.3.2007 | 12:01
Ólíkt hlutskipti stjórnarandstæðinga
![]() |
Bandaríkjastjórn harðorð í garð forseta Zimbabve |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.3.2007 | 22:01
Öðruvísi litróf en á Íslandi
![]() |
Hægrimenn sigurvegarar kosninganna í Finnlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.3.2007 | 17:05
Er farið að grípa í hálmstrá í Straumi???
![]() |
Sól í Straumi: Fjárhagsleg rök fyrir samþykki stækkunar Alcan brostin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.3.2007 | 16:16
Hver er nú að ljúga??? Enn af stækkun í Straumsvík
Davíð Þór skrifar grein í bakþanka Fréttablaðsins í dag og þetta er svar við þeirri grein.
Það er ekki af mönnum skafið að fyrirsagnastíllinn er allsráðandi í þessu máli. Blákaldar lygar kallar hann það sem aðrir hafa fram að færa, eru hans skoðanir eitthvað skárri? Tölvuteikningar af álverinu eru það sem þær eru tölvuteikningar. Raflínur eru ekki á teikningunni þar sem það er jú Landsvirkjun eða aðrir orkusalar sem sjá um það fyrir utan það að hugsanlega verða þessar línur lagðar í jörð.
Skorsteinar jafnháir Hallgrímskirkju segir Davíð. Hann hefur væntanlega engar aðrar forsendur en þær sem eru á myndinni þar sem nýju háfarnir á þurrhreinsistöðvunum verða svipaðir þeim sem eru nú til staðar og eru um 30 metra frá jörðu. Síðast þegar ég gáði er Hallgrímskirkja 64 metrar að hæð.
Álverið sem sýndar eru myndir af í Noregi er ekkert lambasparð. Sunndals álverið er 360.000 tonna álver með íbúðabyggð í innan við 100 metra fjarlægð. Þetta álver er útbúið með vothreinsun þannig að brennisteinssamböndunum er skolað á haf út og álverið hefur marg lýst því yfir að verði þörf á því þá sé það kostur að setja upp vothreinsun.
9 af 22 álverum Alcans eru stærri en Straumsvík er í dag. 2 af 22 verður lokað innan skamms en þau eru bæði um 50.000 tonn. Hinsvegar býr Straumsvík við aðrar aðstæður en þau álver sem eru af svipaðri stærðargráðu. Straumsvík er ekki hagkvæmasta álver Alcans og býr þar að auki við þann ókost að gegnumrennslistími vara frá pöntun til afhendingar hjá viðskiptavini er tvöfalt til þrefalt lengri en hjá öðrum álverum sem veikir samkeppnisstöðu Straumsvíkur umtalsvert og því væri Straumsvík sú verksmiðja sem yrði lokað einna fyrst. Ef hægt er að framleiða ál hagkvæmar í Quatar en hægt er í óstækkuðu álveri í Straumsvík þá þarf ekkert að reikna það reikningsdæmi til enda. Ef hægt er að græða 8 miljarða á ári í Quatar þá er ekki verið að henda peningum í Straumsvík.
Fólk hefur að sjálfsögðu rétt til að hafa skoðanir á málinu en þegar menn þurfa í á opinberum vettvangi að tala um lygar án þess að hafa nokkuð fyrir sér í þeim efnum. Þú mátt alveg vera á móti álveri Davíð, reyndu bara að vera málefnalegur í andstöðu þinni og slepptu því að saka heiðvirt fólk um lygar.
http://www.alcan.com/web/publishing.nsf/Content/Alcan+Facts+2006/$file/Alcan_Facts_2006_E.pdf
18.3.2007 | 11:29
Davíð og Bush vs. Saddam, Phyrrosarsigur
Það er ótrúlegt hvað Bandaríkjamenn eiga erfitt með að læra af mistökum. Þeir eru algerlega einbeittir í því að skíta í eigin hreiður eins og fyrir 30 árum síðan. Í stað þess að einbeita sér að því að láta Íraka sjálfa sjá um sín öryggismál og halda sig til hlés vilja þeir eins og venjulega spila stóra bróður og fara að leika sér með byssurnar sínar. Það er örugglega auðvelt að sitja í hvíta húsinu og færa til pinna á korti en það er örugglega ekki auvelt að vera þar sem þessir pinnar eru færðir fram og aftur á kortinu.
Ríkisstjórn Íraks virðist vera sæmilega traust í sessi og öryggissveitir þeirra eru að ná upp styrk og ættu að geta höndlað deilurnar milli Shíta og Súnnía þegar búið er að fjarlægja Bandaríkjaher hvers nærvera er eins og olía á eldinn. Peningunum sem er eytt í að halda Bandaríkjaher þarna úti er síðan hægt að nota í að styrkja Írakana og þjálfa lið þeirra.
Núna má hinsvegar fara að búast við því að sagan frá Víetnam endurtaki sig með því að Bandaríkjamenn hrökklist út og skilji ríkisstjórn Íraks eftir bjargarlausa. Í Írak verður síðan borgarastríð í nokkur ár áður en einhver öfgaíslamistagrúppa nær völdum. Þá var nú betur heima setið en af stað farið.
Það er skylda Íslendinga að draga sig útúr einkastríði Davíðs Oddssonar, annað er rugl.
![]() |
Búist við fjölmennum mótmælum gegn Íraksstríði í New York |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |