Ýkjur Ómars Ragnarssonar

Í viðtali í Morgunblaðinu í dag fer Ómar Ragnarsson mikinn og þá sérstaklega um stóriðju og framtíðaráform þar um. Ómar segir orðrétt.

 

„Forsætisráðherra hefur lýst því yfir að þrjú

álver gætu risið fyrir 2020. Ef þau verða öll

reist í fullri hagkvæmnisstærð munu þau framleiða

þrjár milljónir tonna af áli og þurfa til þess

sex þúsund megavött – alla virkjanlega orku

landsins. Afraksturinn yrði þrjú þúsund störf

eða 2% af vinnuafli landsmanna. Hlutur þessara

álvera í þjóðarframleiðslunni yrði um 7%.”

 

Hér er Ómar augljóslega að fara með fleipur. Hefur einhver nefnt að á Íslandi verði byggð þrjú álver með eina miljón tonna framleiðslugetu? Full hagkvæmnisstærð á álveri í dag er á milli 300 og 400.000 tonn að því er virðist og álver af stærðinni 1.000.000 tonn hafa til þessa einungis risið í Síberíu og við Persaflóann og ekki hafa heyrst nein áform um byggingu fleiri álvera af þeirri stærð utan möguleika á stækkun í Suður-Afríku. Álver af þessari stærð á Húsavík myndi td. valda verulegri byggðaröskun því að milli 1300 og 1500 manns myndu vinna í slíku álveri og önnur 1500 við störf tengd álverinu og þjónustu við það. Það sér það hver maður í hendi sér að 3000 störf á Húsavíkursvæðinu er langt yfir því sem svæðið þolir og það jafnvel þó að Eyjafjarðarsvæðið sé tekið með í reikninginn.

Eins og sést af þessu þá er útreikningur Ómars á hversu mörg störf þriggja miljóna tonna framleiðsla á áli myndi gefa af sér einnig fremur vafasöm, ef ekki kolröng. Fjarðaál hefur 400 starfsmenn og alls vinna um 900 manns störf tengd álverinu . Miljón tonna álver myndi því skapa yfir 2500 störf og því myndu þrjú álver af þessari stærð skapa yfir 8000 störf eða 4,9% af heildarvinnuafli 2006 (miðað við 8500 störf). Með þessu myndi álframleiðsla tífaldast og skila 630 miljörðum á ári í útflutningstekjur eða 78% útflutningstekna miðað við árið 2006. Hlutfall iðnaðar í vergri landsframleiðslu er nú 11% en myndi væntalega aukast í hlutfalli við tífalda framleiðsluaukningu og einnig myndi þáttur veitustofnana í landsframleiðslunni aukast hlutfallslega. Hversu stór hluti þjóðarframleiðslunnar 3,5 miljónir tonna verður vil ég ekki slá neinu föstu um en þau 55% sem ég fékk út er trúlega of há tala. Það er allavega ljóst að það er langt frá þeim 7%  sem Ómar fær út.

Það er góðra gjalda vert að vera umhugað um náttúruvernd og umhverfið. Hitt er annað þegar slegið er fram óábyrgum tölum sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum til að byggja undir sinn málstað. Ekki er einungis verið að ýkja upp þau álver sem eru í umræðunni heldur er einnig verið að draga úr efnahagslegum áhrifum þeirra. Það er verið að reyna að láta það líta þannig út að verið sé að fórna landinu okkar fyrir ekki neitt. Slíkt er fjarri sanni því það er hvorki verið að fara að framleiða 3,5 miljónir tonna af áli né að slíkar framkvæmdir ef til þeirra kæmu myndu litlu sem engu skila í þjóðarbúið.

Hafa skal það sem sannara reynist 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Sigurþórsson

Þetta er nákvæmlega það sem er að gerast og blessunarlega er fólk farið að sjá í gegnum vitleysuna.

Það er verið að ljúga og ýkja máli sínu til stuðnings. Það eitt er slæmt, en þegar bætist við að "mál" þeirra snýst ekki um málefnið, heldur að koma sjálfu sér á framfæri þá fer þetta nú að vera sorglegt. Maður gæti svo sem fyrirgefið að fólk ýki aðeins til að bæta málstað sem fólk stendur fyrir. En þegar málstaðurinn er orðin leið til að koma sjálfu sér til valda, það er verulega lélegt og sýnir hvað viðkomandi eiga langt í land með að eiga erindi til að stjórna heilu landi og taka ábyrgð á velferð 300.000 manns.

Júlíus Sigurþórsson, 15.4.2007 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband