Sýningar eða fundir?

Þegar maður horfði á kvöldfréttirnar á fimmtudag og föstudag þurfti maður að minna sig á að þessir fundir, ef fundi skyldi kalla, eru haldnir á Íslandi en ekki í Bandaríkjunum. Það eina sem vantaði til að fullkomna myndina var að sleppt væri þúsundum blaðra í bandarísku fánalitunum. Það er greinlega mikið í það lagt hjá flokkunum að gera leiksýninguna sem glæsilegasta og það er eflaust á kostnað málefnanna.

Vart mun mikið fara fyrir málefnavinnu á fundi Samfylkingarinnar þar sem kosningastefna flokksins hefur þegar verið prentuð og gefin út. Hjá Sjálfstæðismönnum verður væntanlega lögð lokahönd á kosningastefnuskrána og hún síðan klöppuð í gegn en tæplega verður um neinar grundvallarbreytingar að ræða en viðleitnin er þó til staðar.

Það er áhyggjuefni að menn séu farnir að apa eftir Repúblikönum og Demókrötum í framsetningu sinna málefna og frambjóðenda því lýðskrum á þeim mælikvarða sem þar tíðkast á halelújasamkomum á ekki heima í íslensku samfélagi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Ég var einmitt að velta því fyrir mér að tímasetning fyrir fundina væri ansi nálægt kosningum og hvort ekki væri verið að spila á auglýsingagildi þeirra.

Ester Sveinbjarnardóttir, 14.4.2007 kl. 11:26

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hef einhversstaðar tjáð mig eimitt um þessa landsfundi kortéri fyrir kosningar.  Eins og gríðarlega stór auglýsingaherferð.  Getið þið hvort einhver ágreiningur verður reistur á þessum tímapunkti? Allt verður samþykkt með rússneskri kosningu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.4.2007 kl. 11:42

3 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Sammála,voða einfalt.

Ragnar Bjarnason, 14.4.2007 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband