18.4.2007 | 07:02
Gunni skurðgrafa
Það er með eindæmum hvað Gunnar er duglegur að grafa. Það sést varla til hans og félaga hans nema með skóflu á öxlinni. Endar eflaust með því að þeir verða búnir að grafa sig undir Reykjavík til að búa til bílastæðakjallara fyrir Kópavog. Held að það væri réttast að senda Gunnar út á Löngusker, hann myndi redda nýjum flugvelli í einum grænum hvelli.
Fyrsta skóflustungan tekin að Norðurturni við Smáralind | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Tvíburaturnar í kópavogi já... ég veit um einn í smárahverfi sem sér eftir því að hafa kosið sjálfstæðisflokkinn.
Jón Gestur Guðmundsson, 18.4.2007 kl. 09:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.