Greinilegt að fylgið er á fallandi fæti hjá Samfó. Björgvin fórnað.

Ingibjörg hefur séð að til róttækra aðgerða þyrfti að grípa til að flokkurinn þurrkaðist ekki út. Að hafna biðlaunum er síðan ísingin á kökuna til að gera sjálfstæðismönnum erfitt fyrir að halda Davíð í Seðlabankanum og Árna í fjármálaráðuneytinu. Það má segja að samfylkingin hafi lagt gambít fyrir sjálfstæðismenn. Bíti þeir ekki á þá eru þeim flestar bjargir bannaðar.

Það má hinsvegar segja um Ingibjörgu að hún er tilbúin í að gera hvað sem er til að halda stjórninni saman fram að kosningum. Mannfórnir eru þar á meðal.

Það er á ýmsu von í dag þannig að maður bíður spenntur. 


mbl.is Björgvin segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband